Við njótum aðstoðar þjálfara til þess að skara fram úr í íþróttum – hvers vegna ekki að njóta aðstoðar þjálfara í lífsleikni?
Einu sinni fór ég að sauma fallega mynd af örkinni hans Nóa handa ömmubarni mínu sem þá var ófætt. Það var dásamlegt að sitja við þetta og það hafði bætandi áhrif að sauma. Ég varð undrandi á því hvað ég lærði mörg sannleikskorn um lífið við að sauma.
Við krosssaum hættir manni til að missa úr kross hér og þar og mér lærðist fljótt að í sumum tilvikum gerði það ekkert til en í öðrum tilvikum mistókst allt mynstrið ef ég hélt áfram að sauma. Þannig að ég varð að rekja upp að þeim stað þar sem ég hafði sleppt úr. (Hversu líkt er það ekki sjálfu lífinu?)
Þótt ég hefði í hyggju að vera búin að klára örkina við fæðingu barnabarns míns var hún ekki tilbúin fyrr en ári síðar. Það var hvatningu góðra vina að þakka að ég gafst ekki upp.
Loks var útsaumnum lokið! Yndislegur átta ára vinur minn leit aftan á útsauminn sem hann hélt að væri framhlið og sagði: “Hvílíkt kraðak.” Við brosum að svona barnalegri og saklausri athugasemd en er það ekki þannig sem við lítum stundum á lífið? Guð horfir alltaf á okkur frá réttri hlið og sér hið fallega mynstur lífs okkar, þar á meðal dökku þræðina sem eru til staðar til þess að mynda mótvægi við fegurð lífsins.
Sem lífsleikniþjálfari get ég aðstoðað þig við að líta á réttu hliðina í lífi þínu og hjálpað þér að ná markmiðum þínum sem þú telur e.t.v. að ekki sé hægt að ná.
Ef þú vilt ná markmiðum þínum og víkka sjóndeildarhringinn þá skaltu hringja í mig til þess að fá ókeypis lífsleikniþjálfunartíma. (Sem stendur á lífsleikni - þjálfunin sér aðeins stað á ensku.)
Kær kveðja,
Eleonora |