Our WorkMac OS X
umokkurlifslaupUr myrkri

Þakka þér innilega fyrir að hafa hjálpað okkur á þessu ári.


Adina2a

Hvort sem þú hafir bara fengið hjá okkur eitt dagatal Vegur til farsældar eða styrkt okkur með mat, fötum eða peningum, þá vil ég benda þér á að það er ekki magnið heldur hjartað sem Guð lítur á! Hann mun blessa þig fyrir að vera hjálpfús og hjálpa okkur að hjálpa öðrum.


Á seinustu mánuðum höfum við verið mikið með kennslu fyrir fólk, unga jafnt sem aldna, og hefur það gengið vel! Við erum ennþá mjög upptekin við að vera ráðgjafar og það sérstaklega með ungt fólk sem er í neyslu eða er að reyna að koma sér úr þeim vítahring!


Þetta er mikið starf og má ekki vanmeta þann mátt sem kærleikurinn getur gefið og breytt fólki. Það þarf að nota visku þegar maður er að leiða fólk frá neyslu, maður getur ekki ýtt því í þá átt sem maður veit að það þarf að fara heldur verður maður að leiða fólkið til að sjá hvert það þarf að fara og láta það taka ákvörðun sjálft.


Maður getur leitt hestinn að vatninu en maður getur ekki neytt hann til að drekka.


Að geta hjálpað þunglyndri manneskju til að brosa gefur manni meira en mánaðarlaun forsetans! Það eru okkar laun.
Mikið af því sem við gerum líka er að við biðjum fyrir fólki sem á við alls konar erfiðleika að stríða, við sem kristið fólk vitum vel að bæn getur gert langtum meira en maður sjálfur.


Þegar maður biður þá er maður að biðja Guð um að vinna í þessu vandamáli og Hann gerir það! Hann lofaði að svara okkar bænum (Psa 55:17, Mat 26:41, Mar 11:24, Luc 18:1.) og Hann bað okkur um að biðja fyrir þeim sem okkur þykir vænt um og þekkjum. Svo bænin er mikið notuð í okkar starfi og við fáum svar eftir svar og það styrkir okkur í trúnni.


Þakka þér enn og aftur fyrir hjálpina.


Guð blessi þig og gefi þér yndisleg jól.


Ef það er eitthvað sem þú vilt að við biðjum fyrir, endilega hringdu eða sendu okkur póst.

Í allri einlægni,
Lára Kristín Jóhannsdóttir

 





© Copyright 2005 Fjölskyldan-Líknarfélag ses.