Umsögn: Ég byrja hvern dag á því að lesa gullmola dagsins á þessum góðu dagatölum. Þetta eru undantekningarlaust góð skilaboð til að hugleiða áður en maður tekst á við daglegt amstur. Ég nota dagatölin mikið til gjafa og veit að þau hafa vakið mikla ánægju.
-- Ragnheiður Björk
Lífsleikni: Lögð hefur verið mikil áhersla á að vinna vel saman, efla samstöðuna á meðal okkar og sýna kærleika í verki bæði í lífi og starfi en það þarf mikla aðlögunarhæfni til að geta lagað sig hvert að öðru og ráða við hinar ýmsu kringumstæður sem stöðugt þarf að takast á við og aðeins Guð getur hjálpað okkur við.
Það er líka að koma út bók á íslensku um jákvæða lífsleikni sem heitir Success with People. Hún á að koma út á næsta ári en er nú þegar fáanleg á ensku eins og margar fleiri bækur sem við gefum út hjá Aurora-Útgáfunni.
Unga fólkið: Ungmennin hafa haldið áfram að koma til okkar og getur stundum verið margt um manninn á bænum, sérstaklega um kvöldmatarleytið. Fólk leggur leið sína til okkar á hvaða tíma sem er og koma sumir til okkar nokkrum sinnum í viku í leit að sannri vináttu, kærleika og gagnkvæmum skilningi sem erfitt er að finna í þeirri nútímaveröld þar sem veikleiki er ekki talin vera dyggð. |