 |
Lífslaup |
Ég heiti Guðbjörg Sigurðardóttir og hef unnið að hjálparstörfum í rúm þrjátíu ár þar með fimmtán ár í Taílandi og víðar í Austurlöndum fjær. |
Mig hefur alltaf langað til að geta hjálpað fólki og verið því innan handar í lífinu hvenær sem ég get. Þess vegna fór ég út í svona starf og finn mikla ánægju í því að geta stutt fólk andlega, stappað í það stálinu, elskað það og huggað. Það er mikið að gera í því starfi hér á landi og hef ég meira að gera en ég kemst nokkurn tíma yfir. Það kemur til mín fólk á öllum aldri úr öllum stigum þjóðfélagsins og ræðir við mig um lífið, tilveruna, sitt innra líf og margt fleira bæði andlegt og veraldlegt.
Það sem er efst á baugi hjá mér er unglingastarfið hér á landi og það sem við höfum í huga að gera fyrir ungu kynslóðina, framtíð þjóðarinnar. Það eru svo mörg ungmenni á meðal okkar í þessu litla landi sem eiga um sárt að binda vegna vímuefnavandans og annarra erfiðleika sem þjaka þjóðina.
Síðan ég kom heim frá útlöndum árið 1998 hefur sú löngun brunnið í hjarta mínu að verða þessu fólki að liði og lina þjáningar þess; þjáningar eins og einelti og útskúfun, limlestingar og hvað annað sem viðgengst á meðal ungra þegna okkar.
Ég hef talað við marga um þetta vandamál, forelda, ömmur og afa og ungmennin sjálf. Foreldar hafa misst börnin sín og horft upp á þau deyja án þess að geta aðhafst neitt eða fundið eitthvert úrræði. Það er eins og vonleysið hafi gripið þjóðina og það sé ekkert hægt að gera en ef við látum ljósið skína í hjörtum okkar eru okkur allir vegir færir. Það er trúin, trúin á lifið sem blæs í okkur lífsgleðinni og innra með okkur fæðist ný von sem á eftir að blómstra í hjörtum okkar og fylla þau innri friði.
Það er verið að leita að húsnæði þar sem hægt er að reka þjálfunarmiðstöð fyrir ungt fólk sem hefur misstiðið sig í lífinu þar sem það fær kost á að fá ráðgjöf og aðhlynningu. Um er að ræða námskeið í einn mánuð, allt að sex mánuðum eða jafnvel lengur.
Til þess að geta leyst þetta verkefi af hendi þar á miklum peningum að halda og langar mig að leita til þín með fjárstuðning til að verkið nái fram að ganga.
Með innilegu þakklæti fyrir hlýhug þinn og áhuga. Okkur væri þetta ekki fært án þeirra sem á bak við okkur standa. Margt smátt gerið eitt stórt og lítið er mikið ef Guð er í því.
Með innilegri kveðju,
Guðbjörg Sigurðardóttir
|
© Copyright 2005 Fjölskyldan-Líknarfélag ses. |
|