| |
Markmið hjá Fjölskyldunni . . .
. . . er að þjóna Guði með því að þjóna öðrum í kærleika. Við gerum það með því að bjóða fram andlega hjálp, hagnýta aðstoð og efnislega liðveislu.
|
Þjónustan okkar . . .
|
. . .
inniheldur persónulega ráðgjöf, hvatningarnámskeið, styrktartónleika, dreifingu fyrir mannúðarhjálp, aðstoð við stórslys og hamfarir, kristilega leiðtogaþjálfun, Biblíunámskeið, dreifingu bókmennta, barnaskemmtanir og mikið meira!
- Fjölskyldan er alþjóðlegur kristilegur félagsskapur sem samanstendur af fólki yfir 90 þjóðernum. Félagsaðild er opin öllum, án tillits til kynþáttar, litar, kyns eða aldursdurs.
- Það eru núna í kringum 6.000 meðlimir víða um heiminn í fullri þjónustu. Og hér um bil 60.000 samstarfsaðilar sem einnig taka þátt í starfinu/eða taka á móti bókmenntum okkar.
- Fjölskyldumeðlimir leitast við að breiða út góðu fréttirnar um kærleika Jesú, og þjóna Guði með því að hjálpa þeim sem eru í þörf á sem hagstæðastan an hátt .
- Starfsemi Fjölskyldunnar er rekin að mestu leyti frá heimavelli. Samkomur og fundir eru venjulega haldin heima við.
- Meðlimir í fullri þjónustu búa í samfélagslegum heimilum. Hvert samfélag er sjálfstætt rekið af meðlimum hvers heimilis sem fylgjandi er þeirri meginreglu er býr í stofnskrá samtakannana.
- Hvert heimili hrindir af staš, skipuleggur og aflar stušnings hvert um sig, fyrir sérhvert sjįlfboša- eša trśbošsstarf sem žaš leggur liš. Žau geta tekiš aš sér stašbundiš verkefni eša lįtiš skrį sig sem löglega stofnun.
- Óhefðbundinn lífstíll Fjölskyldunnar hefur verið viðfangsefni meðal margra akademía og liggur fyrir fjöldi af útgáfum bæði bóka og rita.
|
|
Fjölskyldan trúir . . .
|
|
…að Guð hafi sent einkason sinn, Jesú, inn í heiminn. Til þess að þeir sem taki á móti honum sem frelsara sínum muni fara til himna þegar þeir deyja. Þessi frelsun er gjöf Guðs sem ekki er hægt að vinna til, heldur aðeins með því að taka á móti. Við trúum því að Biblían sé innblásið orð frá Guði. Við trúum því að við lifum á því tímaskeiði sem Biblían kallar síðustu daga. Við trúum að Guð tali enn í dag og veiti hjálp, leiðsögn og uppörvun ef við biðjum hann. Við trúum því að við eigum að halda boðorðin sem Jesús gaf: ’’að elska Guð’’ ’’og elska náungann eins og okkur sjálf’’ (Biblían, Matteus 22:37-40). |

|
|
© Copyright 2005 Fjölskyldan-Lķknarfélag ses. |
|